Jæja er ekki kominn tími á að skrifa einhverjar fréttir af
manni. Það er svo sem ekkert spennandi að gerast hjá mér, er búin
að þurfa að læra ógeðslega mikið undanfarnar 6 vikur og svo kemur
páskafrí og svo byrja prófin, voða skemmtilegt. Held að ég hafi
aldrei lært svona mikið á ævinni. Já ég er ekki einu sinni búin að
hafa tíma til að hitta Þóru og Selmu en ég vona að þær fyrirgefi
mér það. Við Þóra ætlum nú samt að bralla eitthvað saman um páskana
þar sem við verðum báðar hér fyrir sunnan, hvernig er með þig
Selma, ferðu norður um páskana? En já ég vil óska öllum MA-ingum
innilega til hamingju með glæstan sigur á fimmtudaginn, það vara
rosa gaman að horfa á þá taka Verslinga í ****
. Agla mín ég
hitti ELvar, Eddu og Friðriku í gær þau voru að skoða á Domus
Medica, guð hvað ég sakna ykkar. Mér var sagt að þú og Auðrún
verðið báðar a Rtg, í sumar, ELvar var fljótur að spyrja hvar ég
yrði í sumar og hvort ég væri búin að ráða mig og hvort ég ætlaði
ekki að koma strax norður eftir nám, en því miður þá verð ég á LSH
í sumar sem er reyndar líka mjög gaman
. Og eftir nám, hver veit
hvar ég verð þá, vonandi erlendis
.
En þá að öðru, eruði enn að lesa hehe. hvernig fnnst ykkur
Idolið, reyndar er mér svo alveg sama hver er Idol stjarna Ísland,
hefur ekki mikil áhirf á líf mit, en vá hvað Hildur Vala leit illa
út þarna í gær, greyið.
En jæja hvernig væri ef fleiri myndu skrifa einhverjar fréttir
af sér, sakna ykkar allra
kv. Klara - MA-ingur, hehe